Reynsla á gömlum grunni en hugmyndir nýrra tíma
Teppi fyrir stigahús
Gólfteppi frá Fletco prýða tugi ef ekki hundruði stigahúsa á Íslandi. Ex-Dono teppalínan þeirra hefur verið með þeim vinsælli til þessara nota síðustu 20 árin. Þar fer saman mikil slitþolni og garn sem heldur útliti sínu vel við mikla notkun. Lano býður einnig úrval stigahúsaefna sem prýða stigahús á Íslandi.
Teppaflísar fyrir vinnuumhverfið
Bæði Fletco og Shaw Contract leggja mikla áherslu á teppaflísar fyrir skrifstofur, verslanir, veitingahús og hvers konar not þar sem slitþolni, hljóðvist, hreinlæti og hönnun skiptir máli. Fyrsta verkefnið fyrir Shaw teppaflísar á Íslandi var Þjóðarbókhlaðan fyrir meira en 20 árum síðan - og eru þar enn í notkun.
Teppi fyrir gistihús og hótel
Allir teppabirgjar ETC bjóða hentug gólfteppi fyrir hótel og gistiheimili, jafnt á ganga sem herbergi. Hvort sem eru teppi úr gerviefni eða ull, ofin eða límbundin, í rúllum eða teppaflísum. Og nánast óendanlegir mögulegar í lit og hönnun. Ekkert gólfefni gefur betri mýkt og hljóðvist en teppi.
NOKKUR VERKEFNI
Áherslur okkar
Efnisgæði
Til að tryggja góða endingu gólfefna þarf góða framleiðendur með gott hráefni. ETC býður aðeins upp á gólfteppi frá slíkum framleiðendum. Byrgjar ETC í teppum eru frá fjórum löndum; Bandaríkjunum, Belgíu, Danmörku og Portúgal. Allir þessir framleiðendur bjóða upp á nokkra sérstöðu; Fletco frá Danmörku eru aðrir tveggja framleiðenda með ofinn flatvef í teppaflísum og rúlluefni, Lano býður bæði límbundin og ofin teppi í gerviefni og ull og Shaw er stærsti framleiðandi teppa í heiminum og með ótrúlega breytt vöruúrval.
Hönnun og fjölbreytni
Fá, ef nokkur gólfefni, gefa aðra eins möguleika á litum, áferð og hönnun eins og gólfteppi. Frá byrgjum ETC ehf. má fá þúsundir lita og mynstra við allra smekk og hæfi. Einlitt og mynstrað; dökkt eða ljóst, hógvært eða hávært – allt er fáanlegt, jafnvel litir og mynstur eftir hönnun kaupanda. Lano og Lusotufo bjóða upp á þann möguleika fyrir tiltölulega lítið magn.Fletco býður jafnvel upp á mynstur í teppum eftir hönnuðina Starck og Sebastian Wrong. Og teppaflísar gefa ótrúlega möguleika í samsetningu lita og mynsturs.
Umhverfisvottun
Sérstök áhersla er lögð á að geta boðið gólfefni sem hlotið hafa umhverfisvottanir viðurkenndra stofnana og samtaka. Þannig má sjá á heimasíðu Fletco upplýsingar um viðkurkenningu BRE, Reach, EDP, GUT, Life Balance og GUI. Shaw Contract býður helsti teppaflísar sínar með Cradle to Cradle vottun og ennfremur LEED. Þá eru Lano t.d. að vinna að ISO14001 vottun sem tekur til allra framleiðslu og aðfanga fyrirtækisins. Vottorð fyrirtækjanna má ýmist frá á netinu eða óska eftir að fá send í pdf skjali.